|
|
|
Í febrúar 2008 opnaði Akraneskaupstaður nýjan vef með nýju útliti, gagnvirku skipuriti og með kortavefsjá frá Gagarín.
Gagarín vann með starfsmönnum Akraneskaupstaðar í þarfagreiningu vegna vefsins og hannaði viðmót og útlit. Á vefnum er að finna gagnvirkt skipurit sem sýnir stjórnkerfi bæjarins. Í vefsjánni er að finna upplýsingar um ýmsa þjónustu og áhugaverða staði á Akranesi og í nágrenni. Vefurinn keyrir í vefumsjónarkerfi frá Nepal.
Gagarín vann einnig þarfagreiningu og útlit á eldri vef Akraness sem gerður var árið 2004.
Vefurinn var valinn besti vefurinn í almannaþjónustu 2008 á vefum Samtaka vefiðnaðarins. Umsögn dónmefndar er eftirfarandi: "Besti vefur í almannaþjónustu er vel hannaður, vel skipulagður og vel útfærður. Framsetning og skilgreining á efni til markhópa eru til fyrirmyndar. Áhersluatriði eru vel skilgreind og allar upplýsingar aðgengilegar og fagmannlega fram settar. Útlit og viðmót ásamt kortum og annari virkni eru vel útfærð. Á þessum metnaðarfulla vef fara tæknileg úrvinnsla, útlit og innihald frábærlega saman og skilar hann þannig þjónustuhlutverki sínu með sóma."
www.akranes.is
|
|