|
|
|
Gljúfrasteinn - Hús skáldsins
Nóbelsskáldið Halldór Laxness bjó lengst af á Gljúfrasteini. Ríkisstjórnin keypti húsið og ákvað að koma á fót safni þar sem fólk gæti komið og kynnt sér ævi og störf Halldórs.
Í móttökuhúsi er margmiðlunarsýning helguð ævi og verkum Halldórs. Þar er einnig minjagripaverslun og aðgöngumiðasala. Í námunda við Gljúfrastein eru fallegar gönguleiðir. Sjá nánar um safnið á vefsíðunni www.gljufrasteinn.is.
VIÐFANGSEFNIÐ
Miðluninni er sniðinn þröngur stakkur í húsakynnum þar sem fjölskyldan bjó. Tekin var ákvörðun um að nýta margmiðlun til að segja sögu skáldsins frá vöggu til grafar, auk þess sem boðið er upp á hljóðleiðsögn þegar gengið er um heimilið sem jafnframt var hans vinnustaður. Gagarín var falið að útfæra hugmynd af uppbyggingu margmiðlunar-efnisins og í kjölfarið framleiðslu efnisins.
LAUSNIN
Gagarín útfærði hugmynd um að byggja frásögnina á tímaás sem nær frá 1902 til 1998 þegar skáldið lést. Sagt er frá persónunni og ritverkunum, auk þess sem innlendur og erlendur annáll er fyrir hvert tímabil sem fjallað er um. Efnið er sett upp í tímaáskerfi Gagarín en allt efni er vistað í gagnagrunni.
Margmiðlunarkynningin er hluti af safni Halldórs Laxness að Gljúfrasteini. Hún er mikilvægur þáttur í upplifun gesta sem þangað koma og nýtist jafnframt til að stýra flæði gesta um staðinn.
|
|