Aðrar sýningar


 

SÝNINGAR

 

Þjóð verður til

þjóðminjasafn Íslands

Þjóðminjasafn Íslands var lokað vegna endurbóta um árabil. Safnið opnaði að nýju með glæsilega sýningu í september 2004. Við undirbúning á nýrri grunnsýningu var tekin ákvörðun um að nýta margmiðlun í sýningarhaldi og var verkið boðið út. Grunnsýningin ber heitið Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár.

 

viðfangsefnið

Gagarín tók að sér hönnun og framleiðslu á fimmtán margmiðlunarkynningum sem eru hluti af grunnsýningunni, í samstarfi við ýmsa sérfræðiaðila. Framleiðsla margmiðlunar-efnisins hjá Gagarín er eitt stærsta verkefni á sviði efnisframleiðslu fyrir gagnvirka miðla sem unnið hefur verið á Íslandi til þessa.

 

útkoman

Gestir geta rakið sig í tímaröð í gegnum sýninguna frá landnámi til dagsins í dag og er margmiðlunarkynningunum komið fyrir á snertiskjám í svokölluðum söguhólfum. Alls er um að ræða 15 ólíkar kynningar sem ætlað er að varpa skýrara ljósi á sögulegt og pólitískt umhverfi hvers tíma og setja sýningargripina í nýtt og óvenjulegt samhengi við söguna.

 

Margmiðlunarefnið er samansett úr flest öllum “miðlum” sem völ er á, s.s. kvikmyndum, ljósmyndum, teikningum (þrívíðum og tvívíðum) auk hljóðs, en kynningarnar eru allar talsettar og textaðar á íslensku og ensku.

Sími: 510 9300 | gagarin@gagarin.is