|
|
|
Vefurinn www.jonsigurdsson.is var opnaður við hátíðlega viðhöfn í Ráðhúsi Reykjavíkur 17. júní 2010. Vefurinn er hluti af og ætlaður til kynningar á viðamikilli minningarhátíð um sjálfstæðishetjuna Jón Sigurðsson en 17. júní árið 2011 verða liðin 200 ár frá fæðingu hans.
Vefurinn er hannaður af Gagarín sem einnig veitti rágjöf varðandi uppbyggingu og efnisskipulag vefsins og sá um innleiðingu vefsins.
Undirbúningsnefnd um minningarhátíðna hefur verið starfandi á vegum forsætisráðuneytisins frá 2007 og er Björn G. Björnsson verkefnisstjóri nefndarinnar. Gagarín átti gott samstarf við Björn og starfsfólk ráðuneytisins við uppbyggingu vefsins.
Hluti af minningarhátíðinni er viðamikil enduruppbygging Safns Jóns Sigurðssonar á Hrafnseyri við Arnarfjörð og uppsetning nýrrar sýningar. Þar verður margmiðlunarefni um ævi og störf Jóns Sigurðssonar og mun það efni einnig verða sett á vefinn þegar sýningin verður opnuð á næsta ári.
www.jonsigurdsson.is
|
|