Önnur verk

 

vefsíður

 

Kaffitár

    

Gagarín vann með starfsfólki Kaffitárs í gegnum allt ferlið í innleiðingu á nýjum vef. Vefnum er ætlað að veita góða innsýn í starfsemi Kaffitárs ásamt því að fræða og skemmta kaffiunnendum, auk þess sem hægt er að panta kaffi og fleiri vörur í vefverslun. 

 

Í upphafi var unnin greiningarvinna: markmið og markhópar skilgreindir og hvaða þörfum vefurinn ætti að þjóna, útfærslur mótaðar, veftré og síðuskipulag. Hönnun var unnin m.t.t. hönnunarstaðals fyrirtækisins. Gagarín sá um alla þætti innleiðingar: CSS, HTML og uppsetningu í vefumsýslukerfi. Vefurinn keyrir í vefumsýslukerfinu Expression Engine sem Gagarín hefur valið að vinna með vegna þess hve vel það kerfi mætir helstu kröfum, er leitarvélarvænt og sveigjanlegt. Vefverslun var innleidd með tengingu í greiðslugátt Valitor.

 

Kynnið ykkur vefinn nánar á www.kaffitar.is

Sími: 510 9300 | gagarin@gagarin.is