Aðrar sýningar

 

sýningar

 

Skrímslaborð

    

 

  

   

 

 

Skrímslasetur á Bíldudal

Skrímslatrú hefur ávallt verið rík á Íslandi, en þó hvergi eins og í Arnarfirði. Heimamenn frá ýmsum tímum hafa séð óþekktar tegundir í firðinum og ber sjónarvottum saman í lýsingum á dýrunum. Reiknast mönnum til að fjórar tegundir séu algengastar, en það eru rauðfaxi, fjörulalli, skeljaskrímsli og hafmaður. 


Viðfangsefnið

Í þessu ljósi festi félag áhugamanna um Skrímslasetur kaup á húsnæði á Bíldudal  og fengu Árna Pál Jóhannsson til að hanna sýningu en sjálfir sáu skrímslamenn um að standsetja húsið og smíða innviði þess ásamt Potemkin leikmyndahönnun.Gagarín var ráðgefandi í verkefninu og þróaði jafnframt nýja margmiðlunarlausn fyrir sýninguna en þar þurfti að koma upp spennandi vettvangi fyrir þær sögur sem þekktar eru um skrímslin í Arnarfirðinum.


Útkoman

Hönnunarteymi Gagarín lagði því til að útbúið skyldi gagnvirkt borð með korti af Arnar-firðinum.  Gestir þyrftu síðan að sækja sér upplýsingar með því að fara í “skrímslaleit” um fjörðinn, en slíkar sögur birtast einmitt ef þeir ferðast á kortinu til þeirra staða sem sögurnar gerðust.


Viðmótshönnun borðsins var hluti af masters-verkefni Nils Wiberg frá Umeå University í Svíþjóð.  Í viðmótshönnuninni var leitast við að gera allar hreyfingar sem lífrænastar og  láta þær þannig endurspegla viðfangsefnið.  Upplifunin var gerð áþreifanleg “hands on” og snúa gestir þannig hjólum og draga “skeljar” eftir borðinu í skrímslaleitinni.  Markmið í viðmótshönnuninni var jafnframt að notendur myndu “finna út” virkni þess án þess að nokkrar leiðbeiningar lægju fyrir.


Við tæknilega framsetningu á borðinu stigu starfsmenn Gagarín nýtt skref. Notast er við tækni sem er ný af nálinni í þessum geira og í örri þróun þar sem sífellt er verið að reyna á þolmörk hennar. Gagarín hefur tekið virkan þátt í þeirri þróun og samhliða því sérsniðið lausnir til að samþætta tæknina við hefð-bundnar margmiðlunarlausnir. Skrímslaborðið en niðurstaða þeirra vinnu og hafa viðtökur verið afar góðar. Uppsetning tækja í sýningunni var í höndum Etos ehf.

Sími: 510 9300 | gagarin@gagarin.is