Önnur verk

 

vefsíður

 

Náttúruvefsjá

    

samstarf um Náttúruvefsjá

Þróun Náttúruvefsjár hefur verið í gangi um árabil en upphafið má rekja til ársins 1999 þegar átta fyrirtæki og stofnanir, frá fimm ráðuneytum, fengu styrk frá Rannís til að búa til frumgerð að samræmdum gagnagrunni um náttúru Íslands og var frumgerð af Náttúruvefsjánni skilað í lok árs 2004. Frá þeim tíma hefur safnast mikil reynsla og skilgreindar ólíkar þarfir meðal samstarfsaðila. Jafnframt hefur samstarf á sviði gagnamála milli stofnana styrkst og þekkingu fyrirtækja og sérfræðinga verið miðlað. Þann 15. október 2008 var svo opnuð veflausn sem birtir fjölbreytt gögn um náttúrufar og auðlindir Íslands á vefslóðinni www.natturuvefsja.is.


Aðilar að samstarfshóp um Náttúruvefsjá auk Gagarín eru: Íslenskar orkurannsóknir, Landbúnaðarháskóli Íslands, Landmælingar Íslands, Líffræðistofnun Háskóla Íslands, Náttúrufræðistofnun Íslands, Orkustofnun, Umhverfisstofnun, Veðurstofan og Veiðimálastofnun. Auk þess hefur Hugur-ax og Samsýn verið ráðgefandi á þessu sviði.

 

Viðfangsefnið

Lögð var áhersla á að útfæra einfalda og notendavæna lausn til innskráningar, utanumhalds og miðlunar gagna um náttúru- og veðurfar á  Íslandi frá ýmsum stofnunum og fyrirtækjum. Markmiðið með Náttúruvefsjánni er að koma gögnum og niðurstöðum úr rannsóknum einstakra stofnana á framfæri á sameiginlegum vettvangi og í almenna notkun í leik og starfi. Þau nýtast jafnt stjórnsýslu, sérfræðingum, almenningi og fyrirtækjum, s.s. vegna búsetubreytinga, húsbygginga, í tengslum við ferðalög, afþreyingu og útivist.

 

Útkoman

Gagarín hannaði viðmót og forritaði Náttúruvefsjána sem er gerð í Flash. Hægt er að setja inn og skoða margvísleg gögn sem tengjast náttúru, auðlindum og veðurfari á Íslandi, þ.m.t. punkta, línur, fleka, fjarkönnunargögn, svo sem gervitunglagögn og loftmyndir, og tímaháðar landfræðilegar upplýsingar um t.d. veður og vatnafar. Með samræmdri miðlun á gögnum úr ólíkum áttum skapast einstakt tækifæri til að skoða upplýsingar í tíma og rúmi.

Einnig voru útbúnar leiðbeiningar með Náttúruvefsjánni til þess að tryggja að notendur geti með auðveldum hætti kynnt sér möguleika Náttúruvefsjárinnar. Notendur eru leiddir í gegnum leiðbeiningarnar með því að þulur sýnir þeim og segir frá helstu þáttum vefsjárinnar.

Sími: 510 9300 | gagarin@gagarin.is