Önnur verk

 

vefsíður

 

Íslandspóstur

 

Nýr vefur Íslandspósts var opnaður formlega í febrúar 2008. Gagarín sá um hönnun á viðmóti vefsins auk þess að vinna greiningu varðandi efni, innihald og uppbyggingu vefsins í samtarfi við vefstjóra og aðra starfsmenn Póstsins. Auk þess hannaði Gagarín og forritaði sérlausn í Flash sem notuð er á vefnum og sýnir staðsetningu pósthúsa og póstafgreiðslustaði um allt land og aðrar upplýsingar.

 

Þegar þarfagreiningu lauk og fyrir lá kröfulýsing fór í gang ferli við að velja vefumsýslukerfi, en fyrir valinu varð Content XXL sem TM-Software þjónustar hér á landi. Vefurinn er hannaður í takt við stefnu Póstsins um að gera vefinn að einni megin boð- og samskiptaleið við viðskiptavini um land allt.

 

Vefurinn var valinn besti fyrirtækja-vefurinn  2008 á vegum Samtaka vefiðnaðarins. Í umsögn dómnefndar segir: "Vefur Póstsins nær að veita aðgengi að miklum upplýsingum á mjög einfaldan og þægilegan hátt ásamt því að vera með afburðagóðan sölu- og þjónustuhluta með góðu framboði af sjálfsafgreiðslu og ítarlegum upplýsingum um þjónustu sem fyrirtækið veitir. Vefurinn er einfaldur, skýr og leiðir notandann áfram með góðu skipulagi og framsetningu ásamt því að útlit hans sómar sér vel í samræmi við ímynd fyrirtækisins og styður vel við innihald hans."

 

Sjá nánar á www.postur.is

Sími: 510 9300 | gagarin@gagarin.is