vefsíður
Landafræðivefsjá
|
|
Á vef Námsgagnastofnunar gefur að líta kortavefsjá frá Gagarín sem nýtt er til kennslu í landafræði fyrir börn og unglinga á miðstigi og upp í framhaldsskóla. Þessi kortavefsjá hefur að geyma upplýsingar um ár, eyjar, fjöll, fossa, jökla, vötn, þéttbýli og þjóðgarða. Með þessum hætti er hægt að miðla margvíslegum landfræðilegum upplýsingum til nemenda á aðgengilegan og skemmtilegan hátt.
Hægt er að færa sig eftir kortinu að vild og þysja inn og út að þeim landshlutum og stöðum sem skoða á. Þegar smellt er á einhvern af stöðunum sem birtast á kortinu, kemur upp fróðleikur um viðkomandi stað ásamt mynd. Auk þess birtist staðsetning þess landshluta sem verið er að skoða á yfirlitskortinu til vinstri.
Námsgagnastofnun fékk uppfærsluaðgang að kerfinu þ.a. ritstjórar gátu sjálfir staðsett punkta á kortinu og sett inn viðeigandi texta og myndir.
Sjá nánar hér
|
|