|
|
|
Flugstöð Leifs EirÍkssonar
Í desember 2007 var opnað í Flugstöð Leifs Eiríkssonar nýtt landkynningarsvæði í suðurbyggingu stöðvarinnar, til að kynna fyrir millilandafarþegum hvað Ísland hefur uppá að bjóða. Sýningin er framlag flugstöðvarinnar til markaðsverkefnisins Iceland Naturally.
Viðfangsefnið
Mikill fjöldi ferðamanna millilendir á Íslandi á ári hverju, án þess að stíga fæti út fyrir flugstöðina. Markmið landkynningarsvæðisins er að kveikja áhuga ferðamannanna á að koma aftur til landsins og hafa þá lengri viðdvöl. Gagarín var fengið til að setja upp sýningu í rýminu, og kom Árni Páll Jóhannsson sýningarhönnuður að því verki með okkur eins og svo oft áður. Lögð er áhersla á að gestir sýningarinnar upplifi hreinleika og víðáttu landsins og á sýningin að höfða til allra, óháð þjóðerni eða tungu.
Útkoman
Framleidd var 7 mínútna löng kvikmynd sem hefst með myndskeiði í sjálfri flugstöðinni. Því næst tekst myndramminn á loft, og ferðast til margra af mikilfenglegustu stöðum landsins. Við gerð myndarinnar var leitast var við að hafa hana tímalausa, óhefðbundna og ólíka öðrum landkynningarmyndum sem framleiddar hafa verið. Stór hluti myndarinnar er tekinn í tímahlaupsskotum (time-laps). Myndin er sýnd í sérhönnuðu sýningarrými, þar sem henni er varpað á glerplötu sem er 6,6 x 3,5 metrar að stærð og gerir það hana að stærsta gleri landsins.
Gagarín framleiddi myndina í samvinnu við True North, en listræn stjórnun var í höndum Árna Páls Jóhannssonar, Karls Óskarssonar sá um kvikmyndatöku, Hilmar Örn Hilmarsson samdi tónlistina við myndina og Exton hannaði tækniuppsetningu sýningarinnar.
|
|