Aðrar sýningar

 

sýningar

 

Hellisheiðarvirkjun

        

 

 

 

 Framleiðsluferlið

 

Brunnurinn 

 

 

Jarðsúlan 

 

 

 

Orkuveita Reykjavíkur

Í hinni nýju jarðvarmavirkjun Orkuveitu Reykjavíkur, Hellisheiðarvirkjun, opnaði margmiðlunarsýning í nóvember 2007 þar sem gestum gefst kostur á að sjá og upplifa gegnum stafræna miðla hvaða orka það er sem verið er að virkja og hvaða tækni liggur þar á bakvið ásamt því að fræðast um sögu svæðisins.  Opnunartími í Hellisheiðarvirkjun er daglega milli kl. 9 og 18.

 

viðfangsefnið

Gagarín tók þátt í hönnun sýningarýmisins ásamt Árna Páli Jóhannssyni, sýningahönnuði og fylgdi Gagarín verkinu eftir allt frá mótun hugmyndar til uppsetningar á sýningunni. Leitast var við að nýta virkjunina, virkjunar-svæðið og náttúruna allt um kring sem mikilvægan lið í upplifun gesta virkjunarinnar.

 

Í þessum áfanga var framleitt tvenns konar margmiðlunarefni. Annars vegar var framleiðsluferli virkjunarinnar sett upp á stóran glerflöt, þar sem gestum geta á gangvirkan hátt fengið kynningu á ferlinu í máli og myndum. Einnig var gerð margmiðlunarkynning sem fræðir gesti um hina fjölbreyttu sögu Hellisheiðarsvæðisins. Settir voru upp snertiskjáir, þar sem gestir geta vafrað um viðmótið og sótt sér margvíslegar fræðandi og skemmtilegar upplýsingar um sögu og náttúru Hellisheiðar. 

 

útkoman

Framleiðsluferlið

Þessari margmiðlunarkynningu um framleiðsluferli Hellisheiðarvirkjunar er varpað á sérstakan glerflöt að stærðinni 3,3 x 2,3. Myndvarpi varpar síðan margmiðlunarefninu á glerflötinn, og myndavélar nema staðsetningu handar þess sem snertir flötinn. Þetta sýningaratriði er því gagnvirkt, þannig að gestirnir ráða ferðinni og geta fengið margvíslegar upplýsingar um ferlið í heild sinni og ítarlegri upplýsingar um einstaka hluta þess með því að snerta tiltekin atriði á glerinu bæði á ensku og íslensku. Einnig getur kynningin keyrt í gegn í heild sinni þegar hentar, t.d. fyrir stærri hópa.

Sjá vefútgáfu af framleiðsluferlið hér.

 

brunnurinn

Settir voru upp snertiskjáir sem miðla upplýsingum sem tengjast sögu Hellisheiðar, flóru, dýralífi, möguleikum til útivistar, sögu jarðhitanýtingar, menningaminjum og skemmtilegum sögum sem tengjast heiðinni svo sem drauga- og þjóðsögum o.fl. Margmiðlunarefnið birtist ýmist sem kvikmyndir, ljósmyndir eða teikningar með texta og hljóði, bæði á ensku og íslensku. Efni snertiskjáanna er einnig varpað upp á vegg svo fleiri gestir getið fylgst með í einu.  Sjá vefútgáfu af Brunninum hér.

 

JARÐSÚLAN

Jarðsúlan samanstendur af sex metra löngum steinsteyptum bekk sem í voru settir 12 skjáir auk borkjarna úr dæmigerðri borholu. Þegar gestir ganga meðfram bekknum skynjar hugbúnaðurinn þá með hjálp myndavéla og birtast þá margvíslegar upplýsingar um hin ólíku jarðlög sem jarðvísindamenn þurfa að kanna varðandi nýtingu jarðhitans. Myndefnið er með íslenskum og enskum texta.

 

Sími: 510 9300 | gagarin@gagarin.is