Aðrar sýningar

 

SÝNINGAR

 

Á efsta degi - Þjóðminjasafnið

    

þjóðminjasafn Íslands

Í Bogasal Þjóðminjasafnsins hefur verið sett upp sýning sem stendur frá 20. okt. 2007 til 2. maí 2008. Til sýnis eru þrettán fornar og fagurlega útskornar furufjalir, kenndar við Bjarnastaðahlíð í Skagafirði, en munu upprunalega hafa verið úr mikilfenglegri dómsdagsmynd sem prýtt hefur dómkirkju Jóns helga Ögmundssonar biskups á Hólum í Hjaltadal. Sjá nánar um sýninguna á vef Þjóðminjasafnsins.

 

viðfangsefnið

Selma Jónsdóttir varði doktorsritgerð sína í fornleifafræði, fyrst íslenskra kvenna, þar sem hún sýndi fram á að fjalirnar tilheyrðu býsanskri dómsdagsmynd og var helsti andmælandi hennar Dr. Kristján Eldjárn.  Enn síðar lagði Hörður Ágústsson fram kenningu um hvernig dómsdagsmyndin gæti hafa litið út, og þá hvar fjalirnar voru staðsettar innan hennar.

 

Í sýningarhönnun Árna Páls Jóhannssonar var lagt upp með að beita nútímatækni til að sýna fjalirnar í upprunalegu samhengi og reynt að endurskapa dómsdagsmyndina. Gegnum sýninguna geta safngestir ímyndað sér hvílíkt listaverk kirkjugestir að Hólum í Hjaltadal höfðu fyrir augum á 12. öld.

 

útkoman

Í sýningunni var smíðuð eftirmynd af dómsdagmyndar-kenningu Harðar og framleiddi Gagarín allt stafrænt efni sýningarinnar þar sem saga fjalanna er rakin auk kenninga og andmæla fyrrnefndra fræðimanna.


Efninu er varpað á veggi Bogasals Þjóðminjasafnsins og er því stýrt í samhengi við ljósabúnað sýningarinnar sem dregur athygli gesta að einstökum fjölum sem þá eru til umfjöllunar. Handrit sýningarinnar var unnið af starfsmönnum Þjóðminjasafns undir leiðsögn Karenar Sigurkarlsdóttur. Sýningarstjóri er Ágústa Kristófersdóttir. Tæknibúnaður kom frá Exton ehf. og var tónlist útsett og flutt af Sverri Guðjónssyni. Þulur er Ágústa Kristófersdóttir.

Sími: 510 9300 | gagarin@gagarin.is