Önnur verk

 

vefsíður

 

Hólaprent

 

Í Auðunarstofu að Hólum í Hjaltadal er til sýnis fornritasafn sr. Ragnars Fjalars Lárussonar prófasts sem afhent var Hóladómkirkju á Hólahátíð 2006. Safnið er eitt stærsta einkasafn af fornprenti og hefur að geyma margvíslegt fágæti, einkum biblíur og sálmabækur, allt frá upphafi prentverks á Íslandi og fram á 19. öld. Minningarsjóður sr. Ragnars Fjalars vildi veita almenningi greiðan aðgang að bókasafninu og fól Gagarín að framleiða margmiðlunarefni í þeim tilgangi. Gagarín hannaði margmiðlunarefni fyrir snertiskjái sem einnig var aðlagað netinu og veitir þar með öllum þeim sem áhuga hafa, möguleika á að kynna sér þetta merka safn heima í stofu.

 

Heimasíðan sýnir í máli og myndum valdar bækur úr fornritasafninu, ásamt frásögnum af merkum mönnum og málefnum sem tengjast efninu. Einnig er hér að finna umfjöllun um ævi og störf sr. Ragnars Fjalars, sögu Auðunarstofu auk þess sem fjallað er um þessa sérstæðu bókagjöf og tilurð hennar. 

 

Sjá nánar á www.holaprent.is

Sími: 510 9300 | gagarin@gagarin.is