Aðrar sýningar

 

SÝNINGAR

 

Rússneskir sjómenn

 

Perspektivet museum, Tromsø

Perspektivet museum einbeitir sér að því að fjalla um nútímamenningu með áherslu á norræn menningartengsl. Í september 2007 opnaði í Perspektivet museum sýning sem fjallar um líf nágranna þeirra í Norðvestur Rússlandi, nánar tiltekið um rússneska sjómenn og samskipti þeirra við íbúa í Tromsø. Sýningin ber yfirskriftina "FLYTENDE RUSSISK - Sjømenn fra öst møter Tromsø" á norsku.

 

viðfangsefnið

Starfsmenn safnsins leituðu til Gagarín eftir að hafa séð verkefni fyrirtækisins á norrænni safnaráðstefnu í Osló 2006 (NODEM). Þeir óskuðu eftir að Gagarín gerði stafrænar kynningar í sýningunni byggðar á handriti þeirra.

 

útkoman

Um var að ræða nokkrar sjálfstæðar kynningar: þrír skjáir sem tengjast samskiptum rússneskra sjómanna við íbúa í Tromsö, einn með frásögn af lífi Burkov fjölskyldunnar, skjávörpun á stóran vegg með áhrifamiklum andlitsmyndum og texta með tilvitnunum rússanna um Norðmenn og einnig  gagnvirk kynning um verslun og viðskipti rússanna við íbúa Tromsø, Pomor handlen.

 

Í útfærslu efnisins er lögð áhersla á fágaða hönnun og þægilega upplifun.

Sími: 510 9300 | gagarin@gagarin.is