Vefsíður
Franskt vor - Pourquoi pas
|
|
Gagarín sá um að hanna vefsíðu menningarhátíðarinnar Pourquoi pas út frá heildarútliti sem Snæfríð Þorsteins mótaði. Gagarín hafði einnig umsjón með uppsetningu og veitti ráðgjöf í gegnum allt ferlið, en vefsíðan keyrir í vefumsýslukerfi frá Outcome. Það eru sendiráð Frakklands á Íslandi, íslenska menntamálaráðuneytið og Culturesfrance, frönsk stofnun sem starfar á vegum franska menningarmála- og utanríkisráðuneytisins, Alliance française og fransk-íslenska verslunarráðið sem standa að hátíðinni sem stendur fram í maí 2007.
Vefsíðan var opnuð formlega af menntamála- ráðherra, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, í boði sem haldið var í aðaútibúi Landsbankans þann 15. des. 2006. Landsbankinn og Icelandair eru styrktaraðilar menningar-hátíðarinnar.
|
|