vefsíður
Menningarnótt 2008
|
|
Kerfislausn frá Gagarín er notuð til birtingar á dagskrá Menningarnætur 2008 og er það í þriðja sinn sem dagskráin er sett fram á vefnum með þessum hætti. Framsetning viðburða með þessum hætti – í tíma og rúmi – er liður í þróunarvinnu Gagarín og var tilraunaútgáfan árið 2006 unnin í samstarfi við Reykjavíkurborg og Ingibjörn Pétursson, mastersnema við Viðskiptaháskólann í Árósum.
Í þessari lausn hefur verið samþætt í eina lausn, tímaáskerfi Gagarín og kortavefsjá, auk ýmissa viðbóta s.s. “Mínir viðburðir” og “Prenta mína viðburði”.
Ingibjörn rannsakaði mismunandi birtingarform rafrænna gagna í lokaverkefni sínu. Gagarín hannaði útlit og framsetningu vefsins og forritaði kerfislausnina sem birtir upplýsingar um viðburðina með ólíkum hætti. Notandi getur valið að nálgast upplýsingar í flokkuðum viðburðalista, á tímaás og á korti. Kerfið birtir margvísleg gögn, s.s. texta, myndir, video og staðsetningu á korti. Gögnin sem birtast á vefnum eru vistuð á sérstökum gagnagrunni sem starfsfólk Reykjavíkurborgar hefur umsjón með.
Nánari upplýsingar um kerfið og möguleika þess gefur Geir Borg, þróunarstjóri hjá Gagarín, geir@gagarin.is. Sjá nánar á vef Menningarnætur, www.menningarnott.is.
|
|