|
|
|
Gagarín vann með almannatengsla-fyrirtækinu Bæjarútgerðinni ehf. að endanlegri efnisuppbyggingu vefs fyrir Leirvogstungu ehf. en síðan tók við hönnun á vefnum hjá Gagarín, hönnun og forritun í Flash á gagnvirkum kortum o.fl., og umsjón með uppsetningu vefsins í vefumsýslukerfi. Á vefnum er að finna upplýsingar um lóðir sem eru til sölu í landi Leirvogstungu sem er sérbýlishúsahverfi í Mosfellsbæ. Eigendur Leirvogstungu ehf. eru hjónin Bjarni Sveinbjörn Guðmundsson og Katrín Sif Ragnarsdóttir.
Leirvogstunga.is hlaut tvær tilnefningar til íslensku vefverðlaunanna 2006: besta útlits- og viðmótshönnunin og besti stofnunar- eða fyrirtækisvefurinn.
Fara á vef Leirvogstungu.
|
|