|
|
|
Á vef já.is er notuð kortalausn frá Gagarín til að birta tiltekið heimilisfang sem punkt á korti. Markmiðið er auðvelda fólki yfirsýn og auka upplýsingagildi vefsins. Hægt er að þysja (zoom-a) inn og út, hliðra kortinu (pan-a) og átta sig á umhverfi og nærliggjandi götum í kringum valið heimilisfang.
Gögnin sem gefa staðsetningu á viðkomandi punkti og kortagrunnurinn koma frá Samsýn ehf. en vefsjárkerfið kemur frá Gagarín sem útfærði kortin og mótaði þau að útliti vefsins og vefsjárkerfinu.
|
|