|
|
|
Reykjavíkurborg hefur opnað nýjan efnismikinn þjónustu- og upplýsingavef. Meðal nýjunga á vefnum er skipting hans í hverfavefi. Á honum er hægt að nálgast upplýsingar um þjónustu Borgarinnar í gegnum kortavefsjár-kerfi frá Gagarín. Útlit vefsins er jafnframt hannað af Gagarín. Smellið hér til að skoða vefinn nánar.
Viðmóti vefsins var breytt með það að markmiði að notendur ættu auðvelt með að nálgast upplýsingar um tiltekna þætti: þjónustu, stjórnkerfið,viðburði og fréttir. Mikið undirbúningsstarf var unnið af hálfu starfsmanna borgarinnar, en vefurinn sameinar marga vefi sem áður voru sjálfstæðir. Þjónusta úti í hverfunum er gerð sýnileg með myndrænni framsetningu á korti, auk þess sem hægt er að kalla eftir ítarlegri upplýsingum.
Vefurinn kom vel út í könnun sem gerð var á vefjum höfuðborga heims, var þar í 12. sæti, hæstur af höfuðborgum Noðurlandanna. Könnunin tekur til 98 þátta sem einkenna eiga góða og notendavæna vefi. Sjá nánar á vef Reykjavíkurborgar.
Við óskum Reykjavíkurborg og íbúum til hamingju með vefinn.
|
|