Aðrar sýningar

 

Sýningar

 

Reykjavík 871 +/- 2

 

 

minjasafn reykjavíkur

Á árunum 1971 til 1975 fór fram fornleifauppgröftur í Aðalstræti og komu þá í ljós minjar um byggð frá landnámsöld. Í fornleifarannsókn sem hófst 2001 sást að um var að ræða rúst af skála og norðan við hann brot af torfvegg. Upp að veggjarbrotunum lá landnámsöskulag sem er talið vera úr eldgosi sem átti sér stað við upphaf landnáms Íslands árið 871. Borgarstjórn Reykjavíkur ákvað að rústin skyldi varðveitt og umhverfis hana byggður sýningarskáli og gerð sýning um landnám í Reykjavík. Lögð er áhersla á vísindalega nálgun við gerð sýningarinnar með vísun í ártalið 871 +/- 2 þar sem talið er að tímasetningu öskjulagsins geti skeikað um tvö ár til eða frá. Sýningin var opnuð 12. maí 2006.

 

Minjasafn Reykjavík hlaut íslensku safnaverðlaunin árið 2006. Í umsögn dómnefndar kemur fram m.a. að safnið hafi lagt mikilvægan skerf til eflingar faglegs starfs í sýningargerð sem er hvatning til annarra að kynna margvíslegan og fjölbreyttan menningararf þjóðarinnar á framsækinn og áhugaverðan hátt.

 

viðfangsefnið

Landnámssýningin Reykjavík 871 +/- 2 er afrakstur vinnu ótal margra, en hlutverk Gagarín var að hanna, forrita og framleiða innihald margmiðlunarefnis í sýningunni.

Með sýningunni er varpað ljósi á landnám Íslendinga með nýstárlegum hætti. Utan um rústina, sem er í kjallara hótels í Aðalstræti 16, var reistur dimmblár sporöskjulaga sýningarveggur. Inní hann er felld ljósmynd af útsýni til allra átta frá Reykjavík eins og talið er að það hafi verið þegar land byggðist. Í vegginn er mörkuð ljósrák í hæð jarðvegsyfirborðsins eins og það var þegar öskulagið féll.

 

útkoman

Gagarín framleiddi margvíslegt efni sem birtist á ýmsum stöðum innan sýningarinnar.  Þar má nefna “lifandi” myndefni sem sýnir líf fólks á landnámsöld s.s. fólk við veiðar, heyskap, sjómennsku og fleira (panorama mynd). 
Módel af bænum var gert í þrívídd og geta gestir rannsakað hvernig bærinn byggist upp, stig af stigi (tilgátuglugginn).
Þessar myndir og fleira myndefni var síðan notað í margmiðlunarborð sýningarinnar sem er stórt líkan af rústinni þar sem gestir geta kallað fram upplýsingar um rannsóknar-aðferðir fornleifafræðinga, sem og upplýsingar um hvað eina sem lýtur að upphaflegri gerð hússins og lífi og starfi íbúanna.  Art+Com sá um hugbúnaðargerð fyrrnefndra þátta.


Á tveimur samanburðarskjáum sem Gagarín hannaði og forritaði er fjallað um skyldleika ýmissa menningarþátta þjóða við Norður-Atlantshaf og þar er hægt að skoða útrás norrænna víkinga og hvernig þeir námu ný lönd.

Í margmiðlunarsetri er síðan hægt að setjast niður og fræðast enn frekar um fornleifarnar og efni sem tengist sýningunni. Stefnt er að því að gera það efni aðgengilegt á veraldarvefnum og auka við innihald þess, en efnið er sett upp í margmiðlunarkerfi sem Gagarín hannaði og forritaði.

Sími: 510 9300 | gagarin@gagarin.is