Aðrar sýningar


 

Sýningar

 

Pure Iceland - Vísindasafnið í London

  

Vísindasafnið í London

Sendiráð Íslands í London hafði frumkvæði að því að sett var upp sýningin PURE ICELAND í janúar 2006 á . Fjöldi íslenskra fyrirtækja studdi framtakið.

 

Árni Páll Jóhannsson sá um hönnun og heildarútlit, Línuhönnun var framkvæmdaaðili og Gagarín hannaði stafrænt efni á sýningunni.

 

Sýningin er sérstæð fyrir þær sakir að hún byggir að miklu leyti á því að nota gagnvirka miðla - stafræna og mannfólkið (leikara) - til að segja sögu Íslands, segja frá náttúrunni, auðlindum landsins og nýtingu þeirra.

 

Viðfangsefnið

Margmiðlunartæknin er nýtt til hins ýtrasta til að skapa heildarupplifun gesta og var Gagarín fengið til að framleiða allt efni þar að lútandi, auk þess að taka þátt í undirbúningi og hönnun.

 

útkoman

Gagarín hannaði og framleiddi nokkrar stafrænar kynningar sem höfðu ólíkan tilgang á sýningunni.  

 

Í fyrsta lagi kvikmynd af haffleti með landi í baksýn, þar sem sjávarspendýr brjóta yfirborð vatnsins á handahófskenndan hátt.  Hún var öll unnin með þrívíðri tækni, en vatn og hegðun þess er einmitt eitt það flóknasta sem unnt er að framkalla með þrívíðum tólum. Myndin, sem er um 20 m á breidd og 4 m á hæð, á sér hvorki upphaf né endi, heldur gengur allan þann tíma sem sýningin stendur yfir.

 

Einnig var gerð myndræn frásögn af baráttu Íslendinga við landeyðingu,  mikilvægi rannsókna á hafinu og sjálfbærrar nýtingar auðlinda þess,  jökla-stúdíu o.fl.

 

Gestir geta sest niður við tölvuskjái og kynnt sér nánast allt um landið með því að skoða margmiðlunarkynninguna "Iceland - the big picture". Kynningin hefur að geyma um 60 mín. af gagnvirku efni um land og þjóð í 33 efnisatriðum.

Sími: 510 9300 | gagarin@gagarin.is