Önnur verk

 

Vefsíður

 

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins

 

 

Nýr vefur Heilsugæslunnar í Reykjavík var opnaður þann 15. febrúar 2006. Gagarín kom að uppbyggingu vefsins með ráðgjöf – vann þarfagreiningu, skipulag og veitti ráðgjöf við innleiðingu – auk þess að hanna útlit og viðmót.

 

Vefsetrinu er ætlað að þjóna íbúum á starfssvæði Heilsugæslunnar, sem eru um 187 þúsund, auk þess að vera upplýsingabrunnur fyrir heilbrigðisstarfsfólk varðandi þjónustu við sér hópa. Á vefnum má finna upplýsingar um þjónustu Heilsugæslunnar sem veitt er á 15 heilsugæslu-stöðvum í  Reykjavík, á Seltjarnarnesi, í Mosfellsbæ, Garðabæ, Hafnarfirði og Kópavogi, auk þjónustu við sérhópa sem veitt er af miðstöðvum á Heilsuverndarstöðinni og víðar.

 

Sú nýbreytni er á nýja vefnum, frá þeim eldri, að hægt er að senda skráningarbeiðni rafrænt á heilsugæslustöð, aðgengi að upplýsingum er auðveldað og miðað er við að auka möguleika á rafrænum samskiptum við Heilsugæsluna.

 

Vefurinn er settur upp í vefumsýslukerfinu LiSA frá INNN hf. sem sá um tæknilega innleiðingu.

 

Skoða vefinn

 

Sími: 510 9300 | gagarin@gagarin.is