Gagarín hannaði logo og veitti ráðgjöf við að móta nýtt heildarútlit og áherslur í kynningu á Reykjavík sem ferðamannastað, auk þess að hanna útlit og viðmót á ferðavefsvæði Reykjavíkurborgar. Á vefnum birtir vefsjárkerfi Gagarín upplýsingar um staðsetningu hótela, veitingastaða og annarra þjónustustaða við ferðamenn, bæði inni í vefsíðunni og í kortaviðmóti þar sem valið er ólíkum efnisflokkum.
Við hönnun á merkinu var lögð áhersla á nafn Reykjavíkur frekar en á merki eða tákn. Notuð er léttleikandi leturgerð og stjarnan yfir “í-inu” undirstrikar framandleikann og náttúruna sem útlendingar tengja flestir við Ísland og Reykjavík. Stjarna er klassískt tákn og jákvætt – Reykjavík undir heillastjörnu.
Slagorðið – PURE ENERGY – vísar til þeirrar hreinu orku sem býr í Reykjavík í fleiri en einni merkingu, í náttúrunni, orkunni í vatninu, og ekki síður þeim skapandi krafti sem er undirstaða menningarlífs og listsköpunar. Orkan og mismunandi birtingarmyndir hennar er meðal þess sem fólk sækist eftir þegar það kemur til landsins; upplifir Reykjavík og það sem borgin hefur að bjóða.
Viðmótið vefsins er hannað í takt við hönnunarstaðal sem Gagarín vann fyrir Höfuðborgarstofu. Vefsvæðið er víðfeðm og öflug gátt fyrir ferðaþjónustuna og veitir erlendum ferðamönnum og fagaðilum í ferðaþjónustu upplýsingar um ferðamöguleika til Íslands með sérstakri áherslu á höfuðborgina og nálæg svæði.
Við hönnun á viðmóti vefsins var tekið mið af slagorðinu og þeim áherslum sem verið er að koma á framfæri: hreinni orku og krafti sem býr í náttúrunni, fólkinu og menningu.
www.visitreykjavik.is